top of page

Skilmálar


1. Höfundarréttur 

1.1. Allur höfundaréttur að ljósmyndum er í eigu Krummdís Photography (hér eftir jafnframt vísað til sem „ljósmyndara“).

1.2. Um höfundarrétt ljósmyndara gilda höfundarréttarlög nr. 73/1972.

1.3. Afhending ljósmynda til viðskiptavinar felur lögum samkvæmt ekki í sér framsal á höfundarrétti ljósmyndara né veitir hún heimild til    breytinga á ljósmyndum.

 2. Staðsetning myndatöku 

2.1. Gert er ráð fyrir að myndatökur fari almennt fram utandyra nema þegar um nýburatökur er að ræða,

 3. Meðferð viðskiptavinar á ljósmyndum 

3.1. Óheimilt er að fjarlægja logo ljósmyndara af ljósmyndunum.

3.2. Óheimilt er að taka myndir af heimasíðu eða öðrum ljósmyndasíðum ljósmyndara til notkunar. Viðskiptavinir skulu eingöngu notast við þær myndir sem þeir fá afhentar frá ljósmyndara til birtingar.

3.3. Óheimilt er að nota myndirnar til auglýsinga eða annarrar birtingar án fyrirfram samþykkis ljósmyndara.

3.4. Allar myndir sem settar eru á internetið skulu vera í réttri upplausn fyrir vef, í réttum hlutföllum og merktar ljósmyndara með logo.

3.5. Ekki má skera myndir eða klippa þær til, hvorki á netinu né annarsstaðar. Ef nota á myndirnar á Facebook verður að hlaða þeim upp í fullri stærð, t.d. ef hlaða á inn profile mynd eða cover mynd.

3.6. Öll meðhöndlun á myndunum skal fara fram í gegnum tölvu, ekki síma, iPad eða önnur snjalltæki. Til dæmis þegar myndir sem afhentar voru eru sóttar af niðurhalsstað eða ef á að setja myndir á internetið.

3.7. Óheimilt er að breyta myndum á nokkurn hátt eða setja þau í gegnum snjallforrit með „effectum“ líkt og Instagram.

3.8. Óheimilt er að framselja eða áframsenda ljósmyndir til þriðja aðila nema með fyrirfram samþykki ljósmyndara. Ljósmyndir sem ljósmyndari hefur prentað í samræmi við skilmála þessa og afhent viðskiptavini er viðskiptavini frjálst að afhenda til gjafa og þess háttar.

4. Meðhöndlun ljósmyndara á ljósmyndum 

4.1. Viðskiptavinur fær einungis afhentar þær ljósmyndir sem ljósmyndari vinnur. Viðskiptavinur fær undir engum kringumstæðum afhentar allar þær ljósmyndir sem ljósmyndari tekur í viðkomandi myndatöku.

4.2. Mögulegt er að kaupa allt að fimm aukamyndir úr hverri myndatöku.

4.3. Ljósmyndari birtir almennt ljósmyndir úr öllum myndatökum opinberlega á ljósmyndasíðum sínum, nema viðskiptavinir óski sérstaklega eftir því við ljósmyndara að birting ljósmynda fari ekki fram. Viðskiptavini er heimilt að óska eftir því að samráð verði haft við hann um val á myndum til birtingar.

4.4. Varðveisla ljósmynda er alfarið á ábyrgð viðskiptavinar.

4.5. Ljósmyndunin, vinnsla myndanna og varðveisla þeirra fer fram að beiðni viðskiptavinar. Viðskiptavinur staðfestir með undirritun sinni á skilmála þessa að hann samþykkir ljósmyndun, vinnslu ljósmynda og varðveislu í samræmi við skilmála þessa, sbr. lög um persónuvernd nr. 77/2000.

 

5. Greiðsla og afhending 

5.1. Um greiðslu fyrir myndatöku vísast til verðskrár ljósmyndara.

5.2. Greiðsla fyrir hverja myndatöku skal fara fram strax að myndatöku lokinni.

5.3. Ljósmyndir úr myndatöku verða ekki afhentar nema öll greiðsla hafi borist.

5.4. Verðskrá, sbr. gr. 5.1, getur tekið breytingum hvenær sem er. Eftir að myndataka hefur verið bókuð gildir það verð sem verðskrá ljósmyndara sagði til um.

6. Annað 

6.1. Frekari upplýsingar um ljósmyndara má nálgast á heimasíðu ljósmyndara; www.krummadis.com.

6.2. Um höfundarrétt ljósmyndara og skilmála þessa gilda íslensk lög, þ.m.t. en ekki einskorðað við höfundarréttarlög nr. 73/1972.

6.3. Viðskiptavinur samþykkir skilmála þessa með undirritun sinni. Brot á höfundarrétti ljósmyndara og skilmálum þessum varða við höfundarréttarlög og áskilur ljósmyndari sér allan rétt vegna slíkra brota.

 

bottom of page